Flottar litasamsetningar í þessum rýmum!
-Sara Sjöfn
Hvernig búum við til flott, stílhreint og hentugt herbergi fyrir börnin
Hvort sem það er verið að búa til herbergi fyrir ungabarn eða barn á skóla-aldri er tvennt sem er aðalmálið : skemmtun og hentugleiki. Barnaherbergi eiga ekki að vera puntstofa stíliseruð af foreldrum. Mikilvægt er að búa til herbergi þar sem barninu líður vel og það áskorast í að hafa gaman og leika sér.
Einnig þarf að hugsa vel um skipulag og að það sé greið leið fyrir börnin að ganga frá eftir sig sem er svo mikilvægt að sé gert eftir hvern dag því þá öðlast börnin friðsælli svefn.
Ikea eru með góðar lausnir í þeim málum og er auðveldasta lausnin oftast dótakassar sem raðast fallega inní/á hillu. Ekki er vitlaust að hafa kassana glæra þá sjá börnin hvað er inní kössunum og þurfa ekki að rífa allt upp og sturta úr kössunum til að finna dótið sem þau leita af, því þeim finnst upp til hópa mjög leiðilegt að ganga frá eftir sig.
Mikilvægt er að hugsa allt út frá barninu og að það sé sem öruggast, þ.á.m. að hafa hillur í þeim hæðum sem börnin ná til og allt dótið sé aðgengilegt.
Herbergið á að vera skapandi og örvandi . Ekki er verra að þema herbergisins sé áhugasvið barnsins.
-Sara Sjöfn
Ég var að fara í gengum eldri pósta hérna á blogginu og ákvað að taka smá upprifjun, enda möguleiki á að einhverjir hefðu ekki séð þessa!
-Sara Sjöfn